23janúar

Falco - Rock me Amadeus

3 tilraunin til að blogga og nú skal það takast! bara 1 próf eftir, en það er lífsleikni svo ég er þannig séð bara búin. Prófin hafa verið svona upp og niður, en ég er örugglega búin að borða 4 kíló af nammi á þeim afar stutta tíma sem fór í að læra hjá mér. Byrjaði í ræktinni í gær og núna er ég bókstaflega búin á því... Mætti halda að ég væri orðin gömul kona ég er svo stirð, þetta er orðið slæmt mál þegar mamma er flottari en ég...:p Ég skemmti mér svo ótrúlega vel á föstudagskvöldið og mig langar bara að þakka Selmunni minni og Hörpu sætu fyrir æðislegt kvöld. Við kíktu í ljós og svo fórum við í smá spjalltíma á KaffiAk yfir 1 bjór sem endaði þannig að ég var komin heim klukka 5. Kannski allir þessir strengir standi af dansinum síðan þá;)

Það er svo langt síðan ég bloggaði síðan, kannski jafnvel heil mannsævi... Ég er búin að vera í útlöndum, var á Kanarí með ívari og co. og naut sólarinnar og góða veðrisins í botn. Náði líka að versla HEILmikið og nú má segja að fataskápurinn sé yfirfullur. Skemmti mér líka svona konunglega vel um áramótin, hehe;) gat loksins eytt einhverjum tíma með ívari mínum, fengum að vera saman í heilan mánuð, ætli það sé nýtt met? Er allavega komin með alveg nóg af long-distance... Ég er allavega farin að hlakka ótrúlega til að skreppa til hans í vikunni og hafa það notalegt! Svo ætlum við Harpa og Annetta að fara út að borða og catch up, alltaf svo gaman! Ég bíð líka spennt eftir að horfa á nýjan OC-þátt!
En ég segi þetta gott í dag, er að fara til Hörpu og hafa notalegt sjónvarpskvöld, með nammi að sjálfsögðu, í tilefni þess að hún sé búin í prófunum!
Besos Auður
23. janúar 2007 klukkan 01:17
Auður Bjarnadóttir
7 athugasemdir
07desember

Wham - Last Christmas

Ég er klárlega besti bloggarinn hérna. Ég hef komist að því að ég blogga bara þegar ég er ekki heima hjá mér því að það gerist ekkert svona dags daglega hjá mér, skóli, vinna, sofa. Hef ekki einu sinni tíma til að borða, samt er ég ekkert að mjókka... Þannig að þetta er bara ein lítill innihaldslaus færsla en ég ætla setja inná einn lista sem að ég ætlast nú til að þið gerið;) 1. Hvað kallarðu mig?2. Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit? Á hvað myndi ég spila?8. Hvað erum við mörg í fjölskyldunni?9. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?10. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?11. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?12. Hvernig stráka fíla ég?13. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?14. Hvað er mest einkennandi við mig?15. Hef ég einhverja fíkn? Ég bíð spennt eftir útkomunni á listanum, enda vita kannski 3 manneskjur um þessa síðu.... En skemmtilegar glósur um flámæli bíða mín, yesss. og ég gleymdi að segja að ég er Big Spender og á Dolce & Gabbana síma, jeij.
07. desember 2006 klukkan 14:28
Auður Bjarnadóttir
14 athugasemdir
04október

Sálin-Auður

Á að vera læra í stæ303 en ekki séns að ég nenni því, er bæþevei ekki búin með æfingu 1.1E, 1.1F né 1.1G sem ég átti að vera búin með í síðustu viku, kemur. En vegna þessa námsleiða þá ákvað ég að búa bara til nýtt blogg, www.folk.is/erlaogaudur : gaf örl bara allt bloggið, www.blog.central.is/auduryr : gafst uppá því líka. En ég verð nú að standa mig núna í stykkinu og ekki hætta eftir smá tíma (býst samt við því). En verð að fara læra, ég bara verð. adios
04. október 2006 klukkan 21:43
Auður Bjarnadóttir
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing